Dúnsæng – 100% andadúnn
Stærð og þyngd:
- 70×100: 200gr
- 100×140: 400gr
- Náttúruleg gæði dúnsins
Dúnsængurnar eru eingöngu fylltar með 100 % andadúni. Utan um sængina fer mýksta bómull sem býðst. Allur dúnn er hreinsaður með hita og engin kemísk efni er notuð við hreinsunina. Ástæðan er sú að dúnn dregur í sig raka og þegar hann þornar þá verður hluti af efnablöndunni eftir í dúninum. Það eykur líkurnar á ofnæmi eða ofnæmisviðbrögðum. Það sem skiptir mestu máli við val á dúnsængum er að sængin sé full af dúni, ekki fiðri. Dúnn er léttasta en jafnframt hlýjasta náttúrulega efni sem völ er á. Sængin á því að vera létt, hlý og rakadræg. Rakadrægnin er mikilvægur hluti því dúnninn dregur í sig raka í gegnum bómullina. Ef þetta er gert á þennan hátt verður sængin himnesk! - 100% náttúruleg efni
Ytra byrði á sængunum er saumað úr 270 þráða 100% bómull sem tryggir mjúka viðkomu. Þegar sængin hefur verið þvegin í fyrsta sinn mýkist bómullin og þéttist. Til að forðast ryk og önnur óhreinindi, sem geta framkallað ofnæmi, er mikilvægt að sængin sé framleidd úr bestu fáanlegri bómull. - Vottun
Lín Design sængurnar eru OEKO-TEX® og RDS vottaðar. OEKO TEX vottun tryggir að varan sé framleidd á sjálfbæran hátt án skaðlegra efna. RDS (Responsible Down Standard) vottun tryggir ábyrga framleiðsluhætti, dúnninn kemur frá matvælaiðnaði. Dúnninn kemur einungis frá öndum sem hafa verið meðhöndlaðar af sérstakri gætni, þeim er gert kleift að lifa heilbrigðu lífi, fylgja meðfæddri hegðun og þjást ekki vegna sársauka eða álags. RDS staðlinum fylgir einnig rekjanleika krafa frá býli til vöru þannig er tryggt að dúnn og fiður sem eru merkt RDS eru það (hægt að rekja á ákveðin býli). - Meira öryggi
Þegar barnið þrokast og fær meiri hreyfigetu er mikilvægt að það geti ekki fært dúninn til í sænginni. Þess vegna eru dúnsængurnar saumaðar í ferhyrninga. Með þessu er sængin einnig hitajöfnuð. Heildarþyngd dúnsængra með 400 grömmum af andadúni er ca. 450-500 grömm (með bómull og þráðum).Til að koma í veg fyrir sængin færist til í sængurverinu þá eru lykkjur á öllum hornum á Lín Design sængunum og í sængurverunum eru bönd til að binda sængina, með þessu tryggir þú að sængurverið sé ekki laust inn í sænginni - Hvers vegna er ekkert fiður í sængunum?
Í sængunum frá Lín Design er ekkert fiður. Dúnninn einangrar mun betur en fiðrið. Dúnninn andar einnig og losar mun betur raka en fiður. Fiður er oft notað sem fyllingarefni á móti dúninum enda mun ódýrara efni. Þar sem ekkert fiður er að finna í sængunum “stinga” þær ekki og eru dásamlega mjúkar. - Dúnn í stað gerviefnis
Á markaðnum má finna úrval af sængum sem framleiddar eru úr gerviefnum. Munurinn á dúnsængum og gervisængum er að dúnninn er mun þéttari í sér og heldur betur hita en gervisængur. Dúnninn er einnig mun léttari og umhverfisvænni. Ólíkt gerviefnum er dúnninn gæddur þeim eiginleikum að geta dregið í sig og losað raka á áhrifaríkan hátt. Þetta verður til þess að dúnsængurnar halda upprunalegum eiginleika mun lengur en sængur úr gerviefnum. Það sem skiptir mestu máli í vali á gæðadún er aldur dúnsins. Því lengur sem öndin dvelur við náttúrulegar aðstæður því þéttari verður dúnninn. Eldri dúnn gefur betri einangrun og því þarf minna magn í sængina. Sængurnar frá Lín Design eru vistvænar þar sem engin kemísk efni eru notuð í framleiðsluna. Utan um sængina er 100% bómull sem er lituð með húðvingjarnlegum litarefnum. Hitahreinsaður dúnn & vistvæn litarefni draga úr hugsanlegum ofnæmisvöldum. - Besta hitajöfnunarefnið
Dúnn er náttúrulegt efni & jafnframt besta hitajöfnunarefnið. Dúnsængurnar frá Lín Design eru hólfaðar til þess að rétt magn af dúni fari í hvert hólf. Með þessu helst rétt hitastig í allri sænginni. - Umhirða
Gott er að viðra & hrista sængurnar utandyra. Sængurnar eru unnar úr 100% náttúrulegum efnum og “anda” því mjög vel. Það er heppilegt að lofta vel um sængurnar í um klukkustund áður en þú setur rúmteppi yfir sængurnar. Með þessu nærð þú að losa um raka sem hefur safnast í sængurnar. Forðist að ryksuga sængina. Með góðri umhirðu endist sængin í langan tíma (sjá þvottaleiðbeiningar). - Ofnæmi – nei takk!
Samkvæmt rannsóknum háskólans í Kiel í Þýskalandi og læknadeildar Wellington háskólans í Nýja Sjálandi eru dúnsængur mun betri fyrir fólk sem þjást af astma eða ofnæmi. Rannsóknirnar sýndu að gervisængurnar eru mun líklegri til að innihalda ofnæmisvalda sem síðan valda astma eða ofnæmi.,,Sængur úr gerviefnum safna hraðar í sig ofnæmisvökum frá rykmaurum en sængur sem gerðar eru úr dúni. Lengi var því trúað að rykmaurar tímguðust betur í sængum gerðum úr dúni en úr öðrum efnum. Því eru stundum auglýstar ofnæmisfríar sængur úr gerviefnum. Rannsóknir seinna ára benda til þess að þessu sé alveg öfugt farið og að rykmaurar tímgist verr í dúnsængum. Rannsóknir virðast kollvarpa þeirri trú að gerviefni séu betri í sængurfatnað þeirra eru eru með ofnæmi en dúnsængur og dúnkoddar”. ** Astma- og ofnæmisfélagið á Íslandi.
- Náttúruleg gæði dúnsins