Bambusteppi með götóttu mynstri – einstaklega mjúkt og hitatemprandi
Fallegt og létt bambusteppi úr einstaklega mjúkri bambus- og bómullarblöndu sem hentar vel fyrir börn frá fæðingu. Teppið er loftkennt með fallegu götóttu mynstri sem gerir það bæði hlýlegt og andar vel – fullkomið allt árið um kring.
Bambusþræðirnir eru rakadrægir og hitatemprandi sem hjálpar til við að viðhalda þægilegu hitastigi og draga úr ofhitnun. Teppið hentar vel í rúmið, vagninn, bílstólinn eða sem notalegt teppi heima við.
Mjúkt yfirbragð og tímalaus hönnun gera teppið einnig að fallegri gjöf fyrir nýbura eða verðandi foreldra.
Eiginleikar
- Mjúkt og loftkennt bambusteppi
- Hitatemprandi og rakadrægt
- Hentar allt árið um kring
- Fallegt götótt prjónamynstur
- Hentar í rúm, vagna og bílstóla
- OEKO-TEX® Standard 100 Class I vottað garn
- Hentar börnum frá 0–5 ára
Litir
- Drappað
- Hvítt
- Bleikt
Stærð
80×100 cm (+/- 7%)
Efni
50% bambusviskós (CV Bamboo)
50% bómull
)
Þvottaleiðbeiningar
Þvo við 30°C á mildu prógrammi með mildu þvottaefni.
Ekki nota klór eða bleikiefni.
Leggja flatt til þerris og móta teppið eftir þvott.
Ekki strauja og ekki setja í þurrkara þar sem hiti getur skemmt trefjarnar.
















