Dúnkoddi – 100% andadúnn
Stærðir og þyngdir:
- 35×50: 100gr og 200gr
Náttúruleg gæði dúnsins
Dúnkoddinn er fylltur með 100% hvítum andadúni. Dúnkoddinn er eingöngu fylltur með andardún og er því vistvænn. Það sem skiptir mestu máli í vali á gæðadún er aldur dúnsins. Því lengur sem öndin dvelur við náttúrulegar aðstæður því þéttari verður dúnninn. Áður en dúnninn fer í koddann er hann hitahreinsaður til að fjarlægja alla hugsanlega ofnæmisvalda. Í koddanum er 100% dúnn og því ekkert fiður.
100% náttúruleg efni
Ytra byrði koddans er saumað úr 270 þráða bómull sem tryggir mjúka viðkomu. Þegar koddinn hefur verið þveginn í fyrsta sinn mýkist bómullin og þéttist. Til að forðast ryk og önnur óhreinindi sem geta framkallað ofnæmi, er mikilvægt að koddinn sé framleiddur úr bestu fáanlegri bómull. Í dúnkoddanum er dúnn og ekkert fiður.
Vottun
Lín Design sængurnar og koddarnir eru OEKO-TEX® og RDS vottaðar. OEKO TEX vottun tryggir að varan sé framleidd á sjálfbæran hátt án skaðlegra efna. RDS (Responsible Down Standard) vottun tryggir ábyrga framleiðsluhætti, dúnninn kemur frá matvælaiðnaði. Dúnninn kemur einungis frá öndum sem hafa verið meðhöndlaðar af sérstakri gætni, þeim er gert kleift að lifa heilbrigðu lífi, fylgja meðfæddri hegðun og þjást ekki vegna sársauka eða álags.
RDS staðlinum fylgir einnig rekjanleika krafa frá býli til vöru þannig er tryggt að dúnn og fiður sem eru merkt RDS eru það (hægt að rekja á ákveðin býli).
Hvers vegna er ekkert fiður í koddanum?
Í dúnkoddunum frá Lín Design er ekkert fiður. Dúnninn einangrar mun betur en fiðrið. Dúnninn andar og losar mun betur raka en fiður. Fiður er oft notað sem fyllingarefni á móti dúninum vegna þess hve ódýrt það er. Þar sem ekkert fiður er að finna í koddanum gatar hann ekki verið og er dásamlega mjúkur.
Ofnæmi – nei takk!
Samkvæmt rannsóknum háskólans í Kiel í Þýskalandi og læknadeild Wellington háskólans í Nýja Sjálandi eru dúnkoddar mun betri fyrir fólk sem þjást af astma eða ofnæmi. Rannsóknirnar sýndu að gervikoddar eru mun líklegri til að innihalda ofnæmisvalda sem síðan geta valdið astma eða ofnæmi. ,,Sængur úr gerviefnum safna hraðar í sig ofnæmisvökum frá rykmaurum en sængur sem gerðar eru úr dúni. Lengi var því trúað að rykmaurar tímguðust betur í sængum gerðum úr dúni en úr öðrum efnum. Því eru stundum auglýstar ofnæmisfríar sængur úr gerviefnum. Rannsóknir seinna ára benda til þess að þessu sé alveg öfugt farið og að rykmaurar tímgist verr í dúnsængum. Rannsóknirnar virðast því kollvarpa þeirri trú að gerviefni séu betri í sængurfatnað þeirra sem eru með ofnæmi heldur en dúnsængur og dúnkoddar”.*
* Astma- og ofnæmisfélagið á Íslandi