Drífa stuttermabolur úr modal
Drífa stuttermabolurinn er úr einstaklega mjúku og léttu modalefni sem fellur fallega að líkamanum. Efnið er silkimjúkt, rakadrægt og hitatemprandi og veitir því mikil þægindi allan daginn.
Tímalaust og afslappað snið gerir bolinn tilvalinn sem kósýfatnað, náttbol eða hversdagsflík. Paraðu hann við Drífa buxurnar eða Drífa kimono-sloppinn fyrir fallegt og þægilegt sett.
- 100% modal úr náttúrulegum trjáviði
- Silkimjúkt, létt og rakadrægt efni
- Hitastýrandi og þægilegt
- OEKO-TEX® vottað
- Íslensk hönnun
- Framleitt í Evrópu
Litir: Bleikur, ljósdrappaður og grár
Stærðir: XS–XL
Þvottur: 30°C – fylgið þvottaleiðbeiningum á flíkinni.


















