Ég elda, þú vaskar upp – svunta með húmor
Verkaskiptingin er skýr! „Ég elda, þú vaskar upp“ svuntan frá Lín Design setur skemmtilegan svip á eldamennskuna með hvítri bróderingu á svörtum grunni.
Svuntan er hönnuð á Íslandi og ofin úr 100% pólýester sem er endingargóður og hentar vel í eldhúsinu. Falleg og nytsamleg gjöf fyrir matgæðinga, heimakokka og þá sem kunna að meta smá húmor við matseldina.
- Stærð: 85 × 66 cm.
- Efni: 100% pólýester.
- Litur: Svartur með hvítri bróderingu.
- Texti: „Ég elda, þú vaskar upp!“
- Hönnuð á Íslandi.
Umhirða: Fylgið þvottamerkingum svuntunnar. Sjá þvottaleiðbeiningar.









