EIKIN rúmföt – náttúruleg mýkt úr múslínbómull
EIKIN rúmfötin eru úr 100% lífrænni múslínbómull, með OEKO-TEX® STANDARD 100 og GOTS vottun.
Múslínbómull er létt, mjúk og loftgóð, með fallegri, náttúrulega bylgjaðri áferð. Efnið er þægilegt viðkomu og hentar vel þeim sem kjósa mjúk og notaleg rúmföt.
Ekki þarf að strauja rúmfötin – áferðin fær að njóta sín og efnið mýkist við notkun og þvott.
Efni og vottanir
• 100% lífræn múslínbómull
• OEKO-TEX® STANDARD 100 vottun
• GOTS vottun – Global Organic Textile Standard
Stærðir
Fáanleg í fjórum stærðum fyrir fullorðna:
• 140 × 200 cm
• 140 × 220 cm
• 200 × 200 cm
• 200 × 220 cm
Eitt 50 × 70 cm koddaver fylgir einbreiðum settum. Tvö koddaver fylgja settum í 200 × 200 og 200 × 220 cm.
Barnastærðir eru einnig fáanlegar: 70 × 100 cm og 100 × 140 cm.
Litir
Veldu þann lit sem hentar þínu svefnherbergi: brúndrappað, dökkbrúnt, móbrúnt eða grátt. Náttúrulegu tónarnir fara fallega saman og auðvelt er að blanda saman litum á sængurverum og koddaverum.
Litirnir birtast í þessari röð á vörumyndunum: brúndrappað, dökkbrún, móbrúnt og grátt. Í myndbandinu má sjá EIKIN rúmfötin í móbrúnum lit.
Sérstakir eiginleikar
• Sængurverið lokast með tölum að neðan.
• Innanverð bönd til að festa við Lín Design dúnsængur.
• Settið kemur í 40 × 40 cm púðaveri úr sama efni, sem hægt er að nýta áfram.
Þvottur og meðhöndlun
• Þvoið við 40°C með mildu þvottaefni.
• Notið ekki mýkingarefni.
• Þurrkið í þurrkara við lágan hita eða leggið flatt til þerris.
• Séu rúmfötin hengd blaut á snúru getur þyngd efnisins valdið tímabundinni lengingu.
• Ekki þarf að strauja.
Athugið: Múslín er lausofið bómullarefni sem getur breytt lítillega um lögun þegar það er blautt. Mótið rúmfötin varlega meðan þau eru rök.
















