EIKIN koddaver – náttúruleg mýkt úr múslínbómull
EIKIN koddaverið er úr 100% múslínbómull sem er létt, mjúk og andar vel. Efnið hefur fallega, náttúrulega áferð, þarf ekki að strauja og mýkist með notkun og þvotti.
Koddaverið passar við EIKIN múslínrúmfötin frá Lín Design og er einnig fallegt með öðrum rúmfötum.
Eiginleikar
- 100% múslínbómull
- Létt og mjúkt efni sem andar vel
- Náttúruleg áferð sem þarf ekki að strauja
- OEKO-TEX® STANDARD 100 og GOTS vottað
Stærð: 50 × 70 cm
Litir: Hvítur, grár, ljósdrappaður, brúndrappaður og dökkbrúnn.
Þvottur: Þvoið við 40°C með mildu þvottaefni, án mýkingarefnis. Loftþurrkið eða þurrkið við lágan hita.













