Einstaklega mjúkar og þægilegar leggings frá Fixoni í fallega ljósfjólubláa litnum Keepsake Lilac. Buxurnar eru úr mjúku French Terry-efni með bambusviskósu og henta vel fyrir leik, leikskóla og notalega daga heima.
Leggingsbuxurnar eru aðsniðnar en teygjanlegar og veita barninu gott svigrúm til hreyfingar. Mjúk teygja í mittinu tryggir þægilegt snið. Bambusviskósan gefur efninu silkimjúka áferð og elastanið góðan teygjanleika.
Þær passa fullkomlega við Fixoni-peysuna og samfelluna í sama lit.
- 65% bambusviskósa
- 30% bómull
- 5% elastan
- Mjúkt French Terry-efni
- Aðsniðið og teygjanlegt snið
- Teygja í mitti
- OEKO-TEX® STANDARD 100 – 2276-364 DTI
- Litur: Keepsake Lilac – ljósfjólublár
- Frá danska merkinu Fixoni
Þvottaleiðbeiningar: Þvoist við 40°C. Má setja í þurrkara við lágan hita og strauja við lágan hita. Má ekki bleikja eða þurrhreinsa.













