Mjúkur bolur með fíngerðu gatamynstri
Fixoni pointelle síðerma bolur er úr mjúku og léttu pointelle-prjónaefni með fíngerðu gatamynstri sem andar vel og hentar einstaklega vel viðkvæmri barnahúð.
Bolurinn er með fallegum pífukanti við hálsmálið og hægt er að opna hann við háls til að auðvelda klæðningu. Létt og þægileg flík sem hentar bæði hversdags og undir aðrar flíkur.
Eiginleikar
✔ GOTS vottað – Organic (CERES-0366)
✔ Lífrænt og húðvænt efni
✔ Létt og loftandi gatamynstur
✔ Þægileg og mjúk áferð
Litir
Varan fæst í tveimur mjúkum og tímalausum litum – ljósbeige og ljósbleikum – sem passa fallega inn í barnaherbergið og henta bæði hversdags og við sérstök tilefni.
GOTS votuð gæði sem tryggja mýkt, öryggi og ábyrgari framleiðslu – fyrir þau sem skipta mestu máli.


















