Falleg og klassísk samfella með kraga
Fixoni síðerma samfella með kraga er mjúk og falleg grunnflík sem hentar bæði hversdags og við sérstök tilefni. Kraginn gefur flíkinni klassískt og fágað yfirbragð.
Samfellan lokast með smellum að aftan og á milli fóta sem auðveldar klæðningu og bleyjuskipti.
Mjúk og þægileg flík sem hentar einstaklega vel viðkvæmri barnahúð
Eiginleikar
✔ GOTS vottað – Organic (CERES-0366)
✔ OEKO-TEX® STANDARD 100 vottað (2276-364 DTI)
✔ Lífrænt og húðvænt efni
✔ Smellur að aftan og á milli fóta
✔ Klassískur kragi
Litir
Varan fæst í fallegum og tímalausum bláum lit sem passar fallega inn í barnaherbergið og hentar bæði hversdags og við sérstök tilefni.
GOTS votuð gæði sem tryggja mýkt, öryggi og ábyrgari framleiðslu – fyrir þau sem skipta mestu máli.












