Náttúruleg áferð og tímalaus hönnun
Fjara er létt og fallegt hörteppi sem sameinar náttúrulega áferð og mjúk litbrigði í einfaldri, norrænni hönnun. Teppið fellur mjúklega yfir sófa, rúm eða stól og setur hlýlegt og rólegt yfirbragð á rýmið.
Tvíhliða – lifandi og fjölbreytt
Fjara hörteppin eru tvíhliða og sýna náttúruleg litbrigði á báðum hliðum. Hver litur hefur sína einstöku áferð og mildari tóna á bakhlið sem skapa fallega og lifandi heild. Þannig er auðvelt að snúa teppinu og breyta stemningu rýmisins á einfaldan hátt. Hentar yfir í sófa eða sem rúmteppi.
✔ Tvíhliða hörteppi
✔ Náttúruleg áferð og mjúk litbrigði
✔ Létt og auðvelt í notkun
✔ Tímalaus hönnun sem passar í öll rými
Tvíhliða hörteppi í fimm litum: blár, grænn, ljósgrænn, rauðbrúnn og sandur.
Stærð: 160 × 230 cm · Þvottur: 30°C





















