Flatey flauelspúðaver með bróderuðu mynstri
Flatey er fallegur skrautpúði úr mjúku flauelsefni með bróderuðu doppumynstri. Púðinn gefur rúminu eða sófanum hlýlegt og fágað yfirbragð og er fallegur einn og sér eða með Flatey rúmteppinu.
Púðinn fæst í tveimur stærðum með ólíkri útfærslu. Minni púðinn er einfaldur og stílhreinn án kants en stærri púðinn er með um það bil 2 cm kanti sem rammar hann fallega inn.
Stærðir og útfærsla:
- 45 × 45 cm – án kants
- 50 × 70 cm – með um það bil 2 cm kanti
- Mjúk flauelsáferð
- Bróderað doppumynstur
- Fallegur í rúm eða sófa
- Passar við Flatey rúmteppið
- Púðafylling fylgir ekki með













