Flatey flauelsrúmteppi – mjúkt og glæsilegt
Flatey er fallegt og vandað flauelsrúmteppi sem færir svefnherberginu hlýju, mýkt og fágað yfirbragð. Yfirborðið er skreytt með bróderuðu doppumynstri sem myndar reglulega og fallega áferð yfir teppið.
Rúmteppið er í rúmgóðri stærð og fellur fallega yfir rúmið. Það hentar vel til að fullkomna uppábúið rúm og skapa notalega stemningu í svefnherberginu. Flauelsáferðin gefur teppinu djúpan og fallegan lit sem breytist örlítið eftir birtu og sjónarhorni.
Flatey-púðarnir fást í tveimur stærðum og mynda glæsilega heild með rúmteppinu.
Upplýsingar:
- Stærð: 240 × 260 cm
- Mjúk flauelsáferð
- Bróderað doppumynstur
- Falleg viðbót við uppábúið rúm
- Púðar úr sömu línu fást sér










