Stílhrein og þægileg vörn fyrir litla sælkerann! 
Gjafasettið inniheldur þrjá þríhyrnda smekki í fallegum jarðlitum, hannaða til að halda barninu hreinu og þurru við máltíðir. Smekkirnir eru úr 100% múslín bómull, sem er einstaklega mjúk og andar vel, fullkomin fyrir viðkvæma húð barnsins. Þeir eru fóðraðir með mjúkri bómull sem heldur bleytu frá barninu og tryggir hámarks þægindi.
100% múslín bómull – mjúk og náttúruleg fyrir viðkvæma húð.
Fóðraðir með mjúkri bómull – heldur bleytu frá barninu og eykur þægindi.
Stílhrein hönnun – þríhyrnd lögun í fallegum jarðlitum sem passa við hvaða klæðnað sem er.
Auðveld umhirða – múslín bómull þarf ekki að strauja og bylgjast fallega eftir þvott.
Stærð:
- 18×14,5 cm
Oeko-Tex vottuð framleiðsla & sjálfbærni
Lín Design leggur áherslu á vistvæna og siðferðilega framleiðslu. Smekkirnir eru Oeko-Tex Standard 100 vottaðir, sem tryggir að þeir séu án skaðlegra efna og öruggir fyrir viðkvæma húð barnsins.
Endurnýting & Afsláttur
Við tökum við notuðum vörum! Þegar smekkirnir eru orðnir lúinir, skilaðu þeim til okkar og fáðu 20% afslátt af nýjum – við gefum þá til Rauða krossins til frekari nýtingar. Með þessu nýtast vörurnar áfram, hvort sem er til notkunar eða vefnaðar, og náttúran græðir.
Fullkomin gjöf
Þetta gjafasett er glæsileg gjöf fyrir nýbakaða foreldra, hvort sem er sem sængurgjöf, skírnargjöf eða í babyshower.
Veittu barninu þínu mýkt og þægindi með þríhyrndum smekkjum úr múslín bómull frá Lín Design!