✨ Stílhrein og þægileg vörn fyrir litla sælkerann! ✨
Gjafasettið inniheldur þrjá þríhyrnda smekki í fallegum jarðlitum, hannaða til að halda barninu hreinu og þurru við máltíðir. Smekkirnir eru úr 100% múslín bómull, sem er einstaklega mjúk og andar vel, fullkomin fyrir viðkvæma húð barnsins. Þeir eru fóðraðir með mjúkri bómull sem heldur bleytu frá barninu og tryggir hámarks þægindi.
✔ 100% múslín bómull – mjúk og náttúruleg fyrir viðkvæma húð. ✔ Fóðraðir með mjúkri bómull – heldur bleytu frá barninu og eykur þægindi. ✔ Stílhrein hönnun – þríhyrnd lögun í fallegum jarðlitum sem passa við hvaða klæðnað sem er. ✔ Auðveld umhirða – múslín bómull þarf ekki að strauja og bylgjast fallega eftir þvott.
🔹 Stærð:
- 18×14,5 cm
🌿 Oeko-Tex vottuð framleiðsla & sjálfbærni 🌿 Lín Design leggur áherslu á vistvæna og siðferðilega framleiðslu. Smekkirnir eru Oeko-Tex Standard 100 vottaðir, sem tryggir að þeir séu án skaðlegra efna og öruggir fyrir viðkvæma húð barnsins.
♻️ Endurnýting & Afsláttur ♻️ Við tökum við notuðum vörum! Þegar smekkirnir eru orðnir lúinir, skilaðu þeim til okkar og fáðu 20% afslátt af nýjum – við gefum þá til Rauða krossins til frekari nýtingar. Með þessu nýtast vörurnar áfram, hvort sem er til notkunar eða vefnaðar, og náttúran græðir.
🎁 Fullkomin gjöf 🎁 Þetta gjafasett er glæsileg gjöf fyrir nýbakaða foreldra, hvort sem er sem sængurgjöf, skírnargjöf eða í babyshower.
💤 Veittu barninu þínu mýkt og þægindi með þríhyrndum smekkjum úr múslín bómull frá Lín Design! 🌳