Jólarúmföt með fallegri ósk um Gleðileg jól
Gleðileg jól rúmfötin hafa náð miklum vinsældum undanfarin ár. Þau koma í tveimur litum, hvít með rauðum útsaum og rauð með hvítum útsaum. Jólarúmfötin eru einnig fáanleg í
Jólarúmfötin Gleðileg Jól frá Lín Design eru orðin ómissandi hluti af íslenskri jólaskreytingu.
Þau bera fallega ósk um Gleðileg jól á koddaverinu og skapa hlýja og hátíðlega stemningu í svefnherberginu.
Rúmfötin eru ofin úr 100% umhverfisvænni Pima-bómull – bómullartegund sem tryggir langa þræði, þéttan vefnað og einstaklega mjúka áferð.
Sængurverið lokast að neðan með tölum, og á innanverðum sængurverum eru bönd til að festa við Lín Design dúnvörurnar, þannig að sængin haldist fullkomlega á sínum stað.
Rúmfötunum er pakkað í glæsilegt 40×40 cm púðaver í sama lit og mynstri – sem má nota sem skrautpúða.
Þannig fær eigandinn þrjá hluti í stað tveggja, og allt í umhverfisvænum anda þar sem ekkert fer til spillis.
Þvottaleiðbeiningar:
Þvoist við 40°C (sjá þvottaleiðbeiningar).
Endurnýting:
Lín Design vinnur með Rauða krossinum að endurnýtingu notaðra rúmfata.
Þegar rúmfötin eru orðin lúin getur þú komið þeim til okkar og fengið 20% afslátt af nýjum.
Rauði krossinn sér til þess að þau nýtist áfram – náttúran græðir.
Hvít lök passa einstaklega vel með þessari línu.
Stærðir
-
Fullorðinsrúm:
140×200 cm / 50×70 cm + 40×40 cm
140×220 cm / 50×70 cm + 40×40 cm
200×200 cm / 2×50×70 cm + 40×40 cm
220×200 cm / 2×50×70 cm + 40×40 cm -
Barnasett: 100×140 cm / 35×50 cm + dúkkurúmföt með ósk um Gleðileg jól
Eiginleikar
-
100% umhverfisvæn Pima-bómull
-
OEKO-TEX® vottun
-
Lokun með tölum og böndum að innan
-
Púðaver fylgir með (40×40 cm)
-
Hægt að nota sitt hvoru megin – einlita eða með útsaumi
-
Glæsileg jólagjöf og skraut í svefnherbergi