380 þráða langþráða Pima-bómull
Blóm minninganna og ástarinnar í mjúkri og silkimjúkri útgáfu fyrir heimilið.
Í hugum margra er Gleym mér ei tengt íslenskri náttúru, vináttu og kærleika. Blómið með sínum bláu krónublöðum og gulu miðju vekur upp fallegar æskuminningar og hlýju.
Koddaverið er ofið úr sérvalinni 380 þráða satínofinni Pima-bómull sem tryggir langa þræði, þéttan vefnað, mjúka lúxusáferð og mikla endingu. Pima-bómull andar vel, er hitatemprandi og mýkist með hverjum þvotti.
Upplýsingar
• Stærð: 50×70 cm
• 100% langþráða Pima-bómull
• 380 þráða satínvefnaður
• OEKO-TEX® STANDARD 100 vottað – engin skaðleg efni
• Mjúk og endingargóð áferð
• Lagersöluvara – fæst á meðan birgðir endast
Af hverju Pima-bómull?
✔ Silkimjúk og slétt áferð
✔ Sterkari og endingarbetri en hefðbundin bómull
✔ Andar vel og hitatemprar
✔ Mýkist með hverjum þvotti
Þvottaleiðbeiningar
Má þvo við 40°C.
Forðast mýkingarefni til að varðveita mýkt og endingu efnisins.
Skilafrestur
Skilafrestur er 14 dagar gegn framvísun kvittunar.











