Þykk, mjúk og einstaklega rakadræg handklæði
Einlitu handklæðin frá Lín Design eru hönnuð með einfaldleika og gæði í huga. Þau eru ofinn úr 100% bómull með 600 gsm þéttleika sem tryggir þykka, mjúka og mjög rakadræga áferð.
Fullkomin fyrir daglega notkun, hvort sem er á heimili, hóteli eða í heilsulind.
🌿 Náttúruleg gæði og OEKO-TEX® vottun
Litunin fer fram samkvæmt OEKO-TEX® Standard 100, án mengandi efna og með húðvænum litarefnum.
Þannig færðu handklæði sem eru bæði umhverfisvæn og húðvæn – örugg fyrir alla fjölskylduna.
Þvottaleiðbeiningar
-
Þvoist við 60°C
-
Ekki nota mýkingarefni – það dregur úr rakadrægni
-
Fyrir hámarks mýkt: leggið í bleyti eða þvoið nokkrum sinnum áður en notkun hefst
Stærðir og valkostir
-
30×30 cm – andlitsklútur
-
50×60 cm – handklæði
-
70×140 cm – baðhandklæði
-
Handklæðasett: 1 stk af hverri stærð



















