Hera hlýrabolur
Þægilegur ermalaus bolur. Bolinn má nota jafnt sumar sem vetur og klæða sig „upp“ og „niður“ með. Svo er hann ótrúlega góður að kúra sig í undir sænginni og er þá hægt að kaupa bæði stuttar og síðar náttbuxur í línunni. (sjá náttbuxur, stuttar og síðar).
Bolurinn kemur 96% umhverfisvænni viscose og 4% teygju
Viscose er náttúrulegt efni unnið úr trékvoðu.
Á undanförnum árum höfum við unnið með Rauða krossinum við að safna notuðum flíkum. Þegar flíkin er orðin lúin þá er upplagt að koma með hana til okkar og fá aðra með 20% afslætti. Rauði krossinn kemur flíkinni til þeirra sem geta nýtt hana aftur.
Með þessu nýtist flíkin áfram og náttúran græðir