Íslensku húsdýrin
Hani, krummi, hundur svín… er vinsæl vísa sem bæði börn og fullorðnir þekkja.
Íslensku húsdýrin rúmfötin fást í þremum stærðum: 70×100, 100×140 og 140X200.
Íslensku húsdýrin eru teiknuð af hönnuði Lín Design og svo er vísan þulin og endar með orðunum “galar, krunkar, geltir, hrín, gneggjar, tístir, syngur.” Krumminn þjóðarfugl Íslendinga er á koddaverinu sem gerir dýralínuna að skemmtilegum kost fyrir börnin.
Eins dúkkurúmföt fylgja með minni rúmfötunum og púðaver með mynd og textanum “Hani, hundur, krummi, svín.” fylgir með stærð 140X200
Bómullin í rúmfötunum er ofin úr 540 þráða umhverfisvænni Pima bómullarsatíni, sem tryggir langa þræði, þéttan vefnað, einstaka mýkt og varanlega endingu. Sængurverið lokast að neðan með tölum. Á innanverðum sængurverunum eru bönd til þess að binda í Lín Design dúnsængina með þessu móti kemur þú í veg fyrir að sængurverið sé laust inn í sænginni . Þvoist við 40° C (sjá þvottaleiðbeiningar).
Hani, krummi, hundur, svín er fallegur sængurfatnaður sem hentar vel til gjafa. Við hjá Lín Design trúum að vandir hlutir gleðji og veiti vellíðan.
Á undanförnum árum höfum við unnið með Rauða krossinum við að safna notuðum vörum. Þegar rúmfötin eru orðin lúin þá er upplagt að koma með þau til okkar og fá önnur með 20% afslætti. Rauði krossinn kemur rúmfötunum til þeirra sem geta nýtt hana aftur. Með þessu nýtast vörunar áfram hvort sem er til notkunar eða vefnaðar og náttúran græðir.