Jólanáttföt fyrir alla fjölskylduna
Það er eitthvað sérstaklega notalegt við að eiga saman jólamorgun í eins náttfötum. Jólanáttfötin frá Lín Design sækja innblástur í íslenskar jólahefðir og sögurnar af jólasveinunum, Grýlu, Leppalúða og jólakettinum.
Settið er úr 100% mjúkri bómull og bæði bolurinn og buxurnar eru með stroffi. Bolurinn skartar íslensku jólamynstri og einlitu gráu buxurnar nýtast vel allt árið. Náttfötin eru í unisex-sniði og eru OEKO-TEX® vottuð.
Hvert sett kemur í fjölnota jólapoka sem má nota aftur undir gjafir eða til að geyma náttfötin fram að næstu jólum.
Stærðir
- Börn: 6–12 mánaða, 12–24 mánaða, 2–4 ára, 4–6 ára, 6–8 ára, 8–10 ára og 10–12 ára
- Fullorðnir: XS–S, S–M, L–XL og XL–XXL





















