Teljum niður til jóla með jólasveinunum
13 dagar til jóla frá Lín Design sækja innblástur í íslensku jólasveinana og eftirvæntinguna sem fylgir komu þeirra. Mynstrið er hannað sem jóladagatal þar sem börnin geta fylgst með jólasveinunum, einum af öðrum, þegar þeir koma til byggða.
Jólakötturinn prýðir koddaverið og Kertasníkir, þrettándi jólasveinninn, skreytir púðaverið sem rúmfötunum er pakkað í. Umbúðirnar fá þannig áframhaldandi hlutverk sem skrautpúðaver.
Rúmfötin eru tvíhliða, með jólamynstri á annarri hliðinni og einlitri hvítri bakhlið. Þau eru ofin úr Pima-bómullarsatíni með 540 þráða þéttleika sem gefur mjúka og slétta áferð.
Sængurverið lokast með tölum að neðan. Bönd að innan má festa við Lín Design dúnsængur til að halda sænginni á sínum stað.
Stærðir og innihald
Barnasett:
- 100×140 cm sængurver
- 35×50 cm koddaver
- 30×30 cm púðaver sem umbúðir
Fullorðinssett:
- 140×200 cm sængurver
- 50×70 cm koddaver
- 40×40 cm púðaver sem umbúðir
Efni og umhirða
- 540 þráða Pima-bómullarsatín
- OEKO-TEX® vottun
- Þvoist við 40°C með mildu þvottaefni
- Ekki nota mýkingarefni
- Strauið á lágum hita ef þörf krefur
- Fylgið ávallt þvottaleiðbeiningum á vörunni


















