Kimono úr náttúrulegri viskós – einfaldur og kósý sloppur
Þessi einfaldi en glæsilegi kimono frá Lín Design er hannaður til að veita þægindi og rennur létt og fallega yfir líkamann. Hann er bundinn saman með belti og hefur laust snið sem hentar öllum líkamsgerðum.
Kimono-sloppurinn er saumaður úr 96% umhverfisvænni viskó og 4% teygju – náttúrulegt og silkimjúkt efni sem andar vel og veitir góða hreyfigetu. Fullkominn sem sloppur yfir náttföt eða á kósýdögum heima.
Eiginleikar:
Silkimjúkt viskós-efni
Léttur og andandi
Einfalt snið án skrauts
Belti í mitti
Tilvalinn yfir náttföt eða kósýsett
Fáanlegur í bleiku og gráu
Stærðir: S, M, L og XL
Unisex snið – hentar öllum kynjum
Umhverfisvitund:
Við hjá Lín Design vinnum með Rauða krossinum að söfnun notaðra flíka. Komdu með lúna flík til okkar og fáðu 20% afslátt af nýrri. Þannig gefum við flíkum annað líf og verndum náttúruna.
Þvottaleiðbeiningar:
Má þvo á 30°C – sjá merkingar á flík.