Ljónsi rúmföt
Glæsileg rúmföt úr Láru og Ljónsa línunni. Láru og Ljónsa línan er úr bókunum um hina lífsglöðu Láru og bangsann hennar Ljónsa sem fylgir henni í hvert fótmál, höfundur bókanna er Birgitta Haukdal. Einnig er fáanleg fatalína úr Láru og Ljónsalínunni á krakka á aldrinum 2-8 ára.
Rúmfötin eru tvískipt, á framhlið rúmfatanna er ein mynd af bangsanum Ljónsa en á bakhlið eru rúmfötin með litlum myndum af Ljónsa.
Rúmfötin eru fáanleg í stærð 140X200. Lín Design vörurnar eru OEKO-TEX ® STANDARD 100 vottaðar.
Rúmfötin eru úr 540 þráða Pima bómull með satínáferð og því mjúk viðkomu og alltaf eins eftir þvott. Þvoist við 40° C (sjá þvottaleiðbeiningar).
Skilafrestur er 14 dagar gegn framvísun kvittunar. Vara þarf að vera ónotuð og í söluhæfu ástandi. Lagersöluvörur fást á meðan birgðir endast og því er ekki hægt að tryggja skipti í aðra stærð eða lit.










