Ösp-barnarúmfötin frá Lín Design eru úr 100% lífrænni múslínbómull. Efnið er létt, mjúkt og andar vel. Það hefur fallega náttúrulega áferð og þarf ekki að strauja. Fíngert laufamynstur í mildum litum gerir rúmfötin að fallegum hluta af barnaherberginu.
Rúmfötin eru hluti af Ösp-barnalínunni og passa við teppi, svefnpoka, handklæði og aðrar vörur með sama mynstri. Þau eru GOTS- og OEKO-TEX® vottuð.
Stærðir og innihald setta
- 70 × 100 cm: Sængurver og koddaver 35 × 50 cm, ásamt litlu rúmfatsetti fyrir dúkku eða bangsa.
- 100 × 140 cm: Sængurver og koddaver 35 × 50 cm, ásamt litlu rúmfatsetti fyrir dúkku eða bangsa.
- 140 × 200 cm: Sængurver, koddaver 50 × 70 cm og púðaver 40 × 40 cm.
Eiginleikar
- 100% lífræn múslínbómull
- Létt og mjúkt efni sem andar vel
- Náttúruleg áferð sem þarf ekki að strauja
- GOTS- og OEKO-TEX® vottuð
- Íslensk hönnun frá Lín Design












