Tröllakrútt rúmföt
Innblástur hönnuða Lín Design í þessari glæsilegu línu eru íslenskar þjóðsögur, náttúra og íslensk tröll! Tröllin eru teiknuð af Freydísi Kristjánsdóttur listamanni.
Tröllakrútts rúmfötin eru úr mjúkri 96% umhverfisvænni bómull og 4% teygju sem heldur sér eins þvott eftir þvott. Rúmfötin koma með tröllakrúttsmynstri og er bakhliðin einlit ljósgrá svo hægt er að nota rúmfötin á tvo vegu, með tröllakrúttsmynstri eða einlit ljósgrá. Lín Design vörurnar eru OEKO-TEX ® STANDARD 100 vottaðar.
Sængurverið er 70X100 og koddaverið er 35X50.
Þvoist við 40° C (sjá þvottaleiðbeiningar).
Á undanförnum árum höfum við unnið með Rauða krossinum við að safna notuðum vörum. Þegar rúmfötin eru orðin lúin þá er upplagt að koma með þau til okkar og fá önnur með 20% afslætti. Rauði krossinn kemur rúmfötunum til þeirra sem geta nýtt hana aftur. Með þessu nýtast vörunar áfram hvort sem er til notkunar eða vefnaðar og náttúran græðir.