Rúmfötin eru tvílit,. Hægt er að búa fallega um rúmið og skipta litum
Tvílitu rúmfötin frá Lín Design er ofin úr sérvalinni 380 þráða 100% Pima bómull sem er einstaklega mjúk og endingargóð. Hár þráðafjöldi þýðir meiri þéttleiki í vefnaðinum, meiri mýkt og meiri rakadrægni. Gera má ráð fyrir að bómullin þurfi þrjá til fjóra þvotta til að draga í sig þann vökva sem hún þarf til þess að ná hámarks mýkt. Við mælum með að rúmfötin séu þvegin við 40° hita, með mildu þvottaefni (án klórs) og ekki sé notað mýkingarefni. Nánari þvottleiðbeiningar má nálgast hér.
Sængurver 140X200 koddaver 50X70 púði (svæfilsver) 40X40. Sængurverið lokast að neðan með tölum. Á innanverðum sængurverunum eru bönd til þess að binda í Lín Design dúnsængina með þessu móti kemur þú í veg fyrir að sængurverið sé laust inn í sænginni .Öllum sængurfatnaði frá Lín Design er lokað með tölum en koddaverin hafa tölulaust hliðarop sem smeygja má koddanum inn um.
Rúmfötunum er pakkað í glæsilegt púðaver (40X40) svæfilsver sem eykur á fegurð og notagildi. Eigandinn er því að fá þrjá hluti í rúmið í stað tveggja áður. Enn er aðalmarkmið okkar að láta náttúruna njóta og henda engu
Öllum sængurfatnaði frá Lín Design er lokað með tölum en koddaverin hafa tölulaust hliðarop sem smeygja má koddanum inn um.
Lín Design vörurnar eru OEKO-TEX ® STANDARD 100 vottaðar
Þvoist við 40° C (sjá þvottaleiðbeiningar).
Á undanförnum árum höfum við unnið með Rauða krossinum við að safna notuðum vörum. Þegar rúmfötin eru orðin lúin þá er upplagt að koma með þau til okkar og fá önnur með 20% afslætti. Rauði krossinn kemur rúmfötunum til þeirra sem geta nýtt hana aftur. Með þessu nýtast vörunar áfram hvort sem er til notkunar eða vefnaðar og náttúran græðir