Þægilegir unisex bolir úr náttúrulegu modal
Bolurinn er úr 94% umhverfisvænu modal og 6% teygju. Modal efni er náttúrulegt efni, eitt að mýkstu efnum, umhverfisvænt unnið úr trjákvoðu, án eiturefna. Modal gefur góða öndun og dregur ekki í sig lykt eða svita.
Fatnaður á að vera þægilegur og endingargóður. Þess vegna sérvöldum við modalið í bolina. Lín Design leggur mikla áherslu á það að notast við framleiðsluaðferðir sem eru sem minnst skaðlegar fyrir umhverfið
Bolirnir koma í stærðum XS-XXL og eru hannaðir fyrir öll kyn
Þvoist við 30° C (sjá þvottaleiðbeiningar).
Á undanförnum árum höfum við unnið með Rauða krossinum við að safna notuðum flíkum. Þegar flíkin er orðin lúin þá er upplagt að koma með hana til okkar og fá aðra með 20% afslætti. Rauði krossinn kemur flíkinni til þeirra sem geta nýtt hana aftur. Með þessu nýtist flíkin áfram og náttúran græðir.