Ullarkoddi
Ullarkoddinn MOSI er fylltur með fíngerðum og sérgerðum ullarhnoðrum úr íslenskri ull. Hliðar rennilás á innri koddanum gerir það auðvelt að fjarlægja eða bæta við ullarhnoðrum í koddann til að finna réttu þykkt og aðlaga koddann eftir sínu höfði. Ytra ver koddans sem er fóðrað með ull, er með renndu leynihólfi þar sem hægt er að setja hita- eða kælipoka eða stuðning fyrir hálsinn til þæginda. Koddinn hefur því marga möguleika til að bæta svefn og vellíðan.
Íslenska ullin er sérstök vegna öndunareiginleika hennar og hversu temprandi hún er.
Hentar vel fyrir þá sem kjósa náttúrulegar og sjálfbærar vörur.
Lopidraumur vörurnar eru framleiddar á umhverfisvænan hátt með lágt kolefnisspor.
Kostir
Rannsóknir sýna að ullarvörur bæta svefninn. Ullin býr yfir þeim eiginleikum að geta dregið í sig raka, allt að 30% af eigin þyngd. Ullin flytur því hita og raka frá líkamanum og viðheldur þægilegu hitastigi.
Gott að vita
- Íslensk ull
- Sjálfbærni
- Temprandi
- Auðvelt að þvo
- Umhverfisvænn
- Létt og andar vel
- Engin kemísk efni – STANDARD 100 by OEKO-TEX®
Tæknilegar upplýsingar
Stærð 50 x 70 cm
Heildarþyngd 0,9 kg
Þyngd fyllingar 0,7 kg
Fylling 100% Íslensk ull
Áklæði 100% Bómull – Batiste
Ytra byrði koddans má þvo í vél á 40°C á ullarkerfi eða á stillingu fyrir viðkvæman þvott (sjá þvottaleiðbeiningar).
Gott er að hrista koddann reglulega og viðra hann.