Auður
Bolur með rúnuðu hálsmáli sem er afar þægilegur og kvenlegur í senn.
Flottur við leggings eða síðbuxur (stuttbuxur og reyndar hvað sem er).
Bolurinn er fáanlegur í fjólubláu, dökkgráu og ljósgráu.Bolurinn kemur í stærðum frá XS-XL
Bolurinn sem er silkimjúkur viðkomin er fallega ofinn úr sérvalinni umhverfisvænni viscose og teygju. 96% viscose og 4% teygju.
Markmið okkar er að hanna þægilegar flíkur sem gleðja og veita vellíðan.
Viscose er náttúrulegt efni unnið úr trékvoðu.
Á undanförnum árum höfum við unnið með Rauða krossinum við að safna notuðum flíkum. Þegar flíkin er orðin lúin þá er upplagt að koma með hana til okkar og fá aðra með 20% afslætti. Rauði krossinn kemur flíkinni til þeirra sem geta nýtt hana aftur.
Með þessu nýtist flíkin áfram og náttúran græðir.