Blóðbergsflétta 380 þráða Pima bómull rúmföt – Lín Design, Oeko-Tex vottað
Mjúk íslensk hönnun með prentuðu mynstri
Blóðberg er ein af fegurstu og ilmríkustu jurtum íslenskrar náttúru, þekkt fyrir sín smágerðu bleiku blóm sem mynda fallegt andstæðuspil við grænu stilkana. Blóðbergsfletta er einstakt mynstur þar sem jurtin fær að njóta sín í rómantískri og nútímalegri hönnun, sem er prentuð beint á efnið.
Þessi lúxusrúmföt eru ofin úr 380 þráða Pima-bómull, sem er þekkt fyrir að vera einstaklega mjúk, endingargóð og náttúrulega hitatemprandi. Bómullin andar vel og veitir hámarks svefngæði, þar sem hún aðlagar sig að líkamshita og veitir þægindi allan ársins hring.
100% langþráða Pima-bómull – silkimjúk og endingargóð
380 þráða vefnaður – veitir náttúrulega mjúka áferð
Andar vel og er hitatemprandi – stuðlar að betri svefni
Prentað blóðbergsmynstur – rómantískt og ferskt útlit
Oeko-Tex vottuð framleiðsla – engin skaðleg efni
Sængurver með böndum að innan – heldur sænginni á sínum stað
Öllum sængurfatnaði frá Lín Design er lokað með tölum, en koddaverin hafa tölulaust hliðarop, sem gerir auðvelt að setja koddann inn. Á innanverðum sængurverunum eru bönd til að binda í Lín Design dúnsængina, sem kemur í veg fyrir að sængurverið sé laust innan í sænginni.
Stærðir og innifalið í settinu:
Barnastærðir:
- 70X100m (1 stk sængurver)
- 100X140 cm (1 stk sængurver)
- Innifalið: 1 stk 35X50 cm koddaver
Skilafrestur er 14 dagar gegn framvísun kvittunar. Lagersöluvörur fást á meðan birgðir endast.











