Drífa sloppur
Glæsilegur sloppur sem allar konur dreymir um, úr mjúku modal efni. Hannaður til þæginda og fegurðar fyrir konur. Sloppurinn fellur vel að líkamanum, áferðin er silkimjúk og efnið létt og heldur vel lögun og lit.
Sloppurinn er með linda sem er bundin að framan og satin bryddingu á ermum.
Sloppurinn kemur í bleiku og svörtu í stærðum S, M, Log XL.
Sloppurinn er úr 94 % umhverfisvænu modal og 6 % teygju. Modal efni er náttúrulegt efni, eitt að mýkstu efnum, umhverfisvænt unnið úr trjákvoðu, án eiturefna. Modal gefur góða öndun er hitatemprandi og dregur ekki í sig lykt eða svita.
Þvoist á 30% gráðum með mildu þvottaefni (sjá þvottaleiðbeiningar).
Á undanförnum árum höfum við unnið með Rauða krossinum við að safna notuðum flíkum. Þegar flíkin er orðin lúin þá er upplagt að koma með hana til okkar og fá aðra með 20% afslætti. Rauði krossinn kemur flíkinni til þeirra sem geta nýtt hana aftur. Með þessu nýtist flíkin áfram og náttúran græðir.