EIKIN koddaverið er saumað úr 100% mjúkri múslínbómull (muslin cotton) sem veitir náttúrulega mýkt, öndun og hitatemprun. Muslin-bómull er einstaklega létt og rakadræg og hentar sérstaklega vel viðkvæmri húð. Koddaverið er í fallegum ljósgráum lit með hvítum blæ, sem blandast auðveldlega við önnur rúmföt og býr til rólegt yfirbragð í svefnherberginu.
Muslin þarf ekki að strauja – efnið bylgjast fallega og er einstaklega einfalt í meðhöndlun. Koddaverið passar vel með EIKIN rúmfötunum en nýtist einnig sem stakt aukakoddaver.
✔️ Upplýsingar:
-
Stærð: 50×70 cm
-
Efni: 100% múslínbómull
-
Vottun: OEKO-TEX® STANDARD 100
-
Litur: Ljósgrátt með hvítum blæ
-
Þvottaleiðbeiningar: Má þvo við 40°C. Ekki nota mýkingarefni. Þurrkið á vægum hita eða látið loftþorna.
-
Sérstakt: Muslin þarf ekki að strauja – bylgjast fallega
♻️ Endurnýting og samfélagsleg ábyrgð:
Við hvetjum viðskiptavini til að koma með notuð rúmföt aftur til okkar þegar þau eru orðin lúin. Þú færð 20% afslátt af nýju og gömlu rúmfötin eru afhent Rauða krossinum til frekari notkunar eða endurvinnslu.