EIKIN pífukoddaver – náttúruleg mýkt og rómantísk hönnun
EIKIN pífukoddaverið er úr 100% mjúkri múslínbómull. Náttúruleg, létt áferð efnisins og tvöfaldur pífukantur gefa rúminu hlýlegt og rómantískt yfirbragð. Koddaverið passar vel með EIKIN múslínrúmfötunum frá Lín Design.
Múslínbómull andar vel og verður mýkri með notkun og þvotti. Efnið hefur náttúrulega krumpaða áferð og þarf ekki að strauja.
Eiginleikar
- 100% múslínbómull
- Tvöfaldur pífukantur
- Létt og mjúkt efni sem andar vel
- Mýkist með notkun og þvotti
- Þarf ekki að strauja
- OEKO-TEX® STANDARD 100 og GOTS vottað
Stærð
50 × 70 cm
Litir
- Ljósdrappað
- Brúndrappað
- Dökkbrúnt
- Grátt
Þvottaleiðbeiningar
Þvoið við 40°C með mildu þvottaefni. Notið ekki mýkingarefni. Loftþurrkið eða þurrkið við lágan hita. Ekki þarf að strauja.
Passar með
EIKIN múslínrúmfötunum frá Lín Design.
















