Fífumynstrið frá Lín Design er ofið í sængurverið.
Í sængurverinu eru ofin tvö fífumynstur ofarlega í rúmfatnaðinum. Fífumynstrið er ofið með bómullarþráðum sem þýðir að útsaumurinn heldur sér vel. Fífan er saumuð í 380 þráða 100% Pima bómull. Sængurfatnaðurinn er því afar mjúkur og vandaður. Rúmfötin eru framleidd á Íslandi. Stærð 70X100 og 35X50.
Bómullin í rúmfötunum er ofin úr 100% umhverfisvænni Pima bómull sem tryggir langa þræði , þéttan vefnað, einstaka mýkt og varanlega endingu
Þvoist við 40° C (sjá þvottaleiðbeiningar).
Fífan er gædd einstakri mýkt og hreyfanleika. Hún hefur verið bæði til gagns og yndisauka í gegnum tíðina. Fífan vex í mýrlendi og víða um landið má sjá heilu breiðurnar sem kalla fram einstök hughrif.
Á undanförnum árum höfum við unnið með Rauða krossinum við að safna notuðum vörum. Þegar rúmfötin eru orðin lúin þá er upplagt að koma með þau til okkar og fá önnur með 20% afslætti. Rauði krossinn kemur rúmfötunum til þeirra sem geta nýtt hana aftur. Með þessu nýtast vörunar áfram hvort sem er til notkunar eða vefnaðar og náttúran græðir.












