Hans og Gréta
Hver man ekki eftir ævintýrinu um Hans og Grétu? Nú getur þú upplifað ævintýrið undir dúnmjúku Hans og Grétu rúmfötunum.
Rúmfötin eru úr 460 þráða silkimjúkri pimabómull með satínvefnaði og stafrænni prentun, rúmfötin eru grátóna. Þvoist við 40° C (sjá þvottaleiðbeiningar).
Rúmfötin koma í stærðum 70×100 og 100×140 koddaver 35X50
Á undanförnum árum höfum við unnið með Rauða krossinum við að safna notuðum vörum. Þegar rúmfötin eru orðin lúin þá er upplagt að koma með þau til okkar og fá önnur með 20% afslætti. Rauði krossinn kemur rúmfötunum til þeirra sem geta nýtt hana aftur. Með þessu nýtast vörunar áfram hvort sem er til notkunar eða vefnaðar og náttúran græðir.