Haraldur – Síður sloppur
Notalegur síður sloppur fyrir bæði kyn. Slopparnir eru úr umhverfisvænni bómull og koma í svörtum og gráum lit í stærðum S-XXL.
Sloppurinn er með vösum og lokast með belti.
Þvoist á 40 gráðum (sjá þvottaleiðbeiningar).
Á undanförnum árum hefur Lín Design unnið með Rauða krossinum og safnað notuðum flíkum. Þegar flíkin er orðin lúin er upplagt að koma með hana til okkar og fá aðra með 20% afslætti. Rauði krossinn kemur flíkinni til þeirra sem geta nýtt hana aftur. Með þessu nýtist flíkin áfram og náttúran græðir:)