Koddasprey – náttúruleg vellíðan fyrir heimilið
Gefðu svefnherberginu rólega og notalega stemningu með ilmi sem frískar upp á rúmfötin, koddann og andrúmsloftið í rýminu.
Koddaspreyið er fullkomið til að nota yfir kodda, sængurföt og rúmdýnu við rúmfataskipti. Það má einnig nota í fataherbergi, baðherbergi, forstofu eða gluggalaus rými þar sem þú vilt skapa ferskari og hlýlegri tilfinningu.
Ilmurinn er mildur, náttúrulegur og notalegur – hannaður til að skapa ró, vellíðan og fallega upplifun í daglegu umhverfi.
Notkun
Hristið flöskuna varlega fyrir notkun.
Spreyið létt yfir kodda, sængurföt, rúmdýnu eða það rými sem óskað er eftir að fríska upp á.
Leyfið efninu að þorna í nokkrar mínútur áður en rúmfötin eru notuð.
Eiginleikar
✓ Hentar fyrir kodda, sængurföt og rúmdýnur
✓ Fallegt í svefnherbergi, fataherbergi og gluggalaus rými
✓ Mildur og náttúrulegur ilmur
✓ Skapar notalega og rólega stemningu
✓ Tilvalið við rúmfataskipti
✓ Framleitt með vönduðum ilmefnum
Ilmtegundir
Lavender
Klassískur, mjúkur og róandi lavenderilmur sem hentar sérstaklega vel í svefnherbergið. Lavender gefur hreina, ferska og afslappandi tilfinningu og er fallegur ilmur fyrir kvöldrútínuna.
Lyng
Hlýr og seiðandi ilmur með ávaxtaríkum tónum, blönduðum berjum og mjúkum blómakeim. Lyng er dularfullur, mildur og fágaður ilmur sem skapar notalega stemningu í rýminu.
Blóðberg
Náttúrulegur og ferskur ilmur með jurtakenndum tónum sem minna á íslenska náttúru. Blóðberg gefur hreina, hlýlega og róandi tilfinningu og hentar vel fyrir heimilið allt árið.















