Maisól – Stuttbuxnasett úr hitatemprandi og rakadrægu Modal efni
Maísól stuttbuxur og bolur eru úr einstaklega mjúku og léttu modalefni sem fellur fallega að líkamanum. Modal er unnið úr náttúrulegum trjáviði og er þekkt fyrir silkimjúka áferð, góða öndun og hitatemprandi eiginleika.
Settið er einfalt og þægilegt og hentar jafnt sem náttfatnaður, kósýföt heima eða léttur klæðnaður á hlýjum dögum og í sólarlandaferðum. Efnið dregur raka frá húðinni og hjálpar til við að halda henni þurri og ferskri.
- 100% modal úr náttúrulegum trjáviði
- Silkimjúkt, létt og rakadrægt efni
- Hitastýrandi og einstaklega þægilegt
- Hentar sem náttfatnaður, heimaföt og sumarfatnaður
- OEKO-TEX® vottað
- Íslensk hönnun
- Framleitt í Evrópu
Litir: Drappað og svart
Stærðir: XS–XL
Þvottur: 30°C – fylgið þvottaleiðbeiningum vörunnar.





















