✨ Hlýja, gæði og íslensk hönnun í einni vöru! ✨
Ullarteppin frá Lín Design eru framleidd úr 100% íslenskri ull og unnin á Íslandi í samstarfi við KIDKA. Þau eru mjúk, hlý og endingargóð – fullkomin til að vefja sig inn í á köldum dögum eða nota sem fallega skrautvöru í heimilið.
✔ 100% íslensk ull – náttúruleg einangrun sem veitir hlýju án þess að vera þung.
✔ Íslensk framleiðsla – þróuð og framleidd á Íslandi í samstarfi við KIDKA.
✔ Tvíhliðamynstur – áttablaðarós öðru megin og yrjótt mynstur hinu megin.
✔ Fjölnota teppi – tilvalið fyrir sófa, rúm eða útivist.
✔ Kantarnir eru yfirsaumaðir fyrir meiri endingu.
✔ Fáanlegt í nokkrum litum – bleikt (Sjöfn), blátt (Gefn), brúnt/beis (Dröfn), svart (Flóki) og dökkgrátt (Skuggi).
🔹 Stærðir:
- 100×130 cm
- 140X200 cm
♻️ Endurnýting & Afsláttur ♻️
Við tökum við gömlum vörum! Skilaðu eldri ullarvöru og fáðu 20% afslátt af nýrri – við gefum hana til Rauða krossins til frekari nýtingar.
💤 Njóttu íslenskrar gæðaframleiðslu með ullarteppi frá Lín Design!