Fífa rúmföt með útsaum
Fífan er gædd einstakri mýkt og hreyfanleika. Hún hefur verið bæði til gagns og yndisauka í gegnum tíðina. Fífan vex í mýrlendi og víða um landið má sjá heilu breiðurnar sem kalla fram einstök hughrif.
Fífumynstrið frá Lín Design er ofið í kodda- og sængurverið. Í sængurverinu eru ofin þrjú fífumynstur ofarlega í rúmfatnaðinum. Fífumynstrið er ofið með bómullarþráðum sem þýðir að útsaumurinn heldur sér vel.
Þessi lúxusrúmföt eru ofin úr 380 þráða Pima-bómull, sem er þekkt fyrir að vera einstaklega mjúk, endingargóð og náttúrulega hitatemprandi. Bómullin andar vel og veitir hámarks svefngæði, þar sem hún aðlagar sig að líkamshita og veitir þægindi allan ársins hring.
100% langþráða Pima-bómull – silkimjúk og endingargóð
380 þráða vefnaður – veitir náttúrulega mjúka áferð
Andar vel og er hitatemprandi – stuðlar að betri svefni
Prentað blóðbergsmynstur – rómantískt og ferskt útlit
Oeko-Tex vottuð framleiðsla – engin skaðleg efni
Sængurver með böndum að innan – heldur sænginni á sínum stað
Öllum sængurfatnaði frá Lín Design er lokað með tölum, en koddaverin hafa tölulaust hliðarop, sem gerir auðvelt að setja koddann inn. Á innanverðum sængurverunum eru bönd til að binda í Lín Design dúnsængina, sem kemur í veg fyrir að sængurverið sé laust innan í sænginni.
Stærðir og innifalið í settinu:
Einstaklingsstærðir:
- 140×200 cm (1 stk sængurver)
- 140×220 cm (1 stk sængurver – fyrir lengri sængur)
- Innifalið: 1 stk 50×70 cm koddaver
Hjónastærðir:
- 200×200 cm (1 stk sængurver – fyrir hjónarúm)
- 200×220 cm (1 stk sængurver – stærri hjónastærð/tvöföld sængurverastærð)
- Innifalið: 2 stk 50×70 cm koddaver
Þvottur: 40°C (sjá þvottaleiðbeiningar á vöru)
Skilafrestur er 14 dagar gegn framvísun kvittunar. Lagersöluvörur fást á meðan birgðir endast.












