Rúmföt – náttúruleg mýkt, vottuð gæði og hönnun sem skiptir máli

Rúmfötin frá Lín Design sameina náttúruleg efni, vandaða íslenska hönnun og smáatriði sem bæta svefnupplifunina. Hvort sem þú velur Pima bómull, Mulberry silki, bambus eða múslín bómull, getur þú treyst því að fá mýkstu áferð, betri öndun og svefn sem endurnærir.

Allar rúmfatalínur eru OEKO-TEX® vottaðar og framleiddar með sjálfbærni og vellíðan að leiðarljósi. Við leggjum metnað í að bjóða upp á sérstöðu í smáatriðum – eins og innri bönd í sængurverum sem halda sænginni á sínum stað og fjölnota umbúðir sem má endurnýta eða gefa áfram.

Hver lína er hönnuð með notandann í huga – falleg, þægileg og gerð til að endast.

Skráðu netfangið þitt!

This field is required

Tilkynningar um tilboð og viðburði

Afsláttarkóðinn þinn

Q9W7V7AJ

Hægt er að nota hann í körfunni

Fáðu 10% afslátt af fyrstu kaupum!